|
Valfoss var stofnað 1. apríl 2001 af þeim Heiðu Sólrúnu Ármannsdóttur og Halldóri Frank Sigurðs. Fyrstu árin var fyrirtækið til húsa að Kirkjulundi 9 í Garðabæ en flutti í núverandi húsnæði að Skemmuvegi 6 í Kópavogi um miðbik ársins 2007. Núverandi eigandi og framkvæmdastjóri Valfoss er Eva Rós Jóhannsdóttir.
Valfoss hefur það að markmiði að veita faglega og persónulega þjónustu þar sem áhersla er lögð á virðisaukandi þjónustu fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.
Þjónusta Valfoss er byggð á áralangri þekkingu starfsmanna fyrirtækisins á íslenska aulýsingavörumarkaðnum ásamt sérþekkingu starfsmanna og fyrirtækja innan IPPAG samtakanna. Sameiginlegur máttur þessara aðila er í raun einsdæmi á íslenska aulýsingavörumarkaðnum og þýðir í raun óþrjótandi tækifæri fyrir viðskiptavini Valfoss.
Valfoss er meðlimur í alþjóðlegum samtökum IPPAG (International Partnership for Premiums And Gifts), sem samanstendur af fyrirtækjum frá 27 löndum í 5 heimsálfum. Samtökin hafa starfað í 40 ár. Samtökin halda úti sameiginlegum gagnabanka sem heldur utan um þær vörur sem meðlimir hafa verið að þróa og selja síðustu ár ásamt sameiginlegum innkaupabæklingi, Sales Up, sem kemur út tvisvar á ári. Heildarinnkaup meðlima samtakanna eru um 200 milljónir evra á ári. Samtökin hafa gert samninga við fjölmarga framleiðendur í Evrópu og Asíu sem ekki aðeins skilar sér í hagkvæmari innkaupum heldur einnig betri gæðum og fljótari afgreiðslu.
|